Á Systrakaffi er leitast við að nota sem ferskast hráefni til allrar matargerðar. Matseðillinn er fullur af mismunandi réttum, allt frá smáréttum sem hægt er að deila upp í stórsteikur sem þú munt ekki tíma að deila með öðrum. Auk þess erum við með pizzur, súpur, hamborgara, salöt og samlokur – allt úr besta fáanlega hráefni. Athugið að matseðillinn getur breyst eftir því hvaða hráefni okkur stendur til boða hverju sinni.